1. |
Kvöldlokka
08:38
|
|||
flýt þér ljóð mitt
á lynggötu
hjarta míns ástvin
eitthvað dvelur
hingað hann seiði
sunginn óður
slóð kvöldálfa
komi ljúflingur
dansa skulum við
skuggum léttar
kransa og hringa
honum ég flétta
tjaldaða rökkri
reiði sæng blóma
leiðir kvöldbláar
komi minn vinur
heiðir tindar
standa tunglelda
skjálfa grasi í
geislar kulfölvir
álfa ljós glampa
í gluggum daggar
slóð kvöldbláa
komi ljúflingur
ljúflingur komi
kvöldbláa slóð
daggar gluggum í
glampa ljós álfa
kulfölvir geislar
í grasi skjálfa
tunglelda standa
tindar heiðir
vinur minn komi
kvöldbláar leiðir
blóma sæng reiði
rökkri tjaldaða
flétta ég honum
hringa og kransa
léttar skuggum
við skulum dansa
ljúflingur komi
kvöldálfa slóð
óður sunginn
seiði hann hingað
dvelur eitthvað
ástvin míns hjarta
lynggötu á
mitt ljóð þér flýt
Goluna bað ég að mæla
grundina taka undir,
og veginn segja mér,
ef hann vissi nokkuð
um för mína, erindi
og áfangastað;
en þeim var ekki ókunnugra
um annað en það -
engu heldur en skugganum
sem hvíslaði' í sporum mínum:
Hvert er ég að halda
og hvaðan ber mig að?
-Þorsteinn Valdimarsson (1918-1977)
|
||||
2. |
Ég vil lofa eina þá
04:07
|
|||
Eg vil lofa eina þá
æðst af kvinnum nefnast má,
meyjan heitir Maríá,
miskunn guðs hana gæddi
og gjörvöll meinin græddi
María mær so mild og skær
mann og guð hún fæddi
Heiðurs verð er heims um rann
heilög mey, sem blessan fann;
treysti’ eg guði’ og trúi’ á h
þó tigni’ eg þig sem bæri,
vel það verðugt væri
María góð so mild og rjóð,
meyju hverri skærri
María drottning dygðug mest,
dáðum prýdd það auglýsist,
í hennar sæði blessast bezt
bæði konur og karlar
um álfur heims gjörvallar
María frú so mild og trú,
mest yfir kvinnur allar.
Blessun hlauztu María mín,
mest yfir hverja auðarlín,
sólu fegri skært þú skín,
skýrlega má því hrósa; þú ert ein eðla rósa
María væn þín veitist bæn
virgo gloriosa
|
||||
3. |
Heimsósómi
04:41
|
|||
Hvað mun veröldin vilja?
Hún veltist um svo fast
og hennar hjólið snýr.
Skepnan tekur að skilja,
skapleg setning brast
og gamlan farveg flýr.
Hamingjan vendir hjóli niður til jarðar,
háfur eru til einskis vansa sparðar,
en leggst í spenning löndin, gull og garðar
en gætt er síður hins er meira varðar.
Þung er þessi plága
sem þýtur út í lönd
og sárt er að segja í frá.
Millum frænda og mága
magnast stríð og klönd,
klagar hver mest er má.
Á vorum dögum er veröld á hörðu reiki,
varla er undur þó að skepnan skeiki,
sturlan heims er ei létt í leiki,
lögmál bindr en leysir peningurinn bleiki.
Hvört skal lýðurinn lúta?
Lögin kann enginn fá,
nema baugum býti til;
Tekst inn tollur og múta,
taka þeir klausu þá
sem hinum er helst í vil.
Vesöl og snauð er veröld af þessu klandri,
völdin efla flokka drátt í landi,
harkamálin hyljast mold og sandi,
hamingjan banni að þetta óhóf standi.
Svo er ágjörn augu
auðugs manns og brjóst
sem grimmt helvítis gin,
dofin sem drukkin í laugu,
þau draga til leynt og ljóst
auð, sinn æðsta vin.
Æ þess heldur sem hefur hann góssið meira,
heit ágirnin þyrstir á enn fleira,
líkt sem sjávarsandur og sprungin leira.
Sé eg ei nær að hönum mun illa eira.
Þú ert á þessu móti
með þvílíkt líf og sál
sem skilur við heiminn hér.
Þú ert ei gjörr af grjóti,
þú getr ei klæðst með stál,
þú flytur ei fé með þér.
Tak nú vara þér, tími er aftur að venda,
túlka ber þér fram í veginn að senda.
Herra Jesús láti oss lukku henda,
lífið gott og langt, en bestan enda.
-Skálds-Sveinn (15th century)
|
||||
4. |
||||
5. |
||||
6. |
Sólsetursljóð op.28 nr.2
03:56
|
|||
7. |
Víti op.28 nr.3
02:18
|
|||
8. |
Land þjóð og tunga
02:58
|
|||
9. |
Eitt er landið ægi girt
02:15
|
|||
10. |
Stóðum tvö í túni
00:46
|
|||
11. |
||||
12. |
||||
13. |
Tíminn og vatnið
03:04
|
|||
14. |
Haldiðún Gróa hafi skó
01:32
|
|||
15. |
Dans
01:59
|
|||
16. |
Ástarkvæði
01:24
|
|||
17. |
Enginn grætur Íslending
01:45
|
|||
18. |
La Belle
02:06
|
|||
19. |
Smávinir fagrir
02:26
|
|||
20. |
Heyr himna smiður
03:21
|
|||
Heyr himnasmiður
hvers skáldið biður.
Komi mjúk til mín
miskunnin þín.
Því heiti’ eg á þig,
þú hefur skaptan mig,
ég er þrællinn þinn,
þú ert Drottinn minn.
Guð, heit eg á þig,
að græðir mig.
Minnst mildingur mín,
mest þurfum þín.
Ryð þú röðla gramur,
ríklyndur og framur,
hölds hverri sorg
úr hjarta borg.
Gæt, mildingur mín,
mest þurfum þín,
helst hverja stund
á hölda grund.
Set, meyjar mögur,
málsefni fögur.
Öll er hjálp af þér
í hjarta mér.
-Kolbeinn Tumason
|
Háskólakórinn Reykjavík, Iceland
Háskólakórinn translates to "The University Choir" and is a mixed choir based in Reykjavik, Iceland. The choir was founded in 1972 and has a close relation to the University of Iceland.
Streaming and Download help
If you like Háskólakórinn, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp